How Can We Help?
Keyrslur á tíma
Við gætum þurft að keyra einhverjar þjónustur eða scriptur á ákveðnu millibili. T.d. til að endurræsa Home Assistant, hreinsa log skrána eða sækja gögn einhvers staðar.
Förum í Stillingar->Sjálfvirkni og búum til nýja sjálfvirkni.
Í fyrsta hluta gefum við þessu nafn, setjum skýringu (mikilvægt) og veljum einfaldan (single-default) ham.
Í hlutanum þar sem við þurfum að skilgreina hverju sjálfvirknin á að koma af stað veljum við tími
og sem tímasetning t.d. 03:00:00
(klukkan 3 að nóttu).
Í skilyrði setjum við aukaatriðið, þar sem við viljum að aðgerðin fari bara af stað á sunnudegi. Þá veljum við sniðmát
og setjum sem gildissniðmát:
value_template: {{ now().weekday() }}=6
Home Assistant tékkar á hvaða dagur er (með Mánudagurinn = 0 og Sunnudagur = 6).
Síðast veljum við aðgerðirnar sem sjálfvirkni á að framkvæma. Og það getur verið alls konar. Hér eru nokkur dæmi:
system_log.clear
homeassistant.restart
o.s.f.