0

 

 

Fyrirvari

Rekstraraðili og seljandi á vefsíðunni snjallingur.is er Snjallingur ehf., kennitala 500620-1880 og VSK númerið er 138092 og er hér eftir nefnt Snjallingur.

Kaupandinn er sá aðili sem er skráður fyrir kaupum. Aðeins þeir sem náð hafa 15 ára aldri mega panta vörur á Snjallingur.

Snjallingur áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Skilmálarnir geta breyst án fyrirvara. Allar breytingar á skilmálunum eru vistaðar með tímastimpli og gildir viðskiptaskilmálar miðast við dagsetningu þegar kaupandinn keypti vöruna á Snjallingur.is.

Verð

Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður er ekki innifalinn og reiknast út í samræmi við sendingarmáta og upphæð sem verslað er fyrir. Sendingarkostnaður er reiknaður út í greiðsluferlinu. Öll verð geta breyst án fyrirvara.

Greiðslur

Allar greiðslur eru framkvæmdar í gegnum greiðslusíðu Valitor eða Pei. Allar greiðslukortaupplýsingar eru fluttar til Valitor og pei með SSL dulkóðaðri samskiptatækni. Snjallingur vistar ekki á neinum tímapunkti í greiðsluferlinu kortaupplýsingar kaupandans.
Einnig má greiða með millifærslu á bankareikning Snjallings.

Skilafrestur

Skilafrestur á vörum er 30 dagar eftir að vara hefur borist til kaupandanda. Ef á að skila vöru þarf hún að vera afhent til sendingaraðila á tímabilinu. Varan sem hefur verið endursend þarf að vera í söluhæfu ástandi (ekkert merki um áverka og óeðlilega notkun).

Vöruverðið verður endurgreitt í formi inneignarnótu í seinasta lagi 7 dögum eftir að varan hefur verið afhent til Snjallings. Inneignarnótan er í formi afsláttarkóða sem er notaður í vefverslun Snjallings og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Kaupandi ber allan sendingarkostnað nema um annað sé samið við Snjalling. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Að öðru leyti gildir III. kafli laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000.

Gallaðar vörur

Ef varan er ekki í samræmi við ástandslýsingu eða er ekki nothæf í þeim tilgangi sem hún er ætluð telst hún vera gölluð. Gölluðum vörum má skila til Snjallings en tilkynna þarf um gallann innan ábyrgðartímans.

Ef varan telst gölluð þarf kaupandi að hafa samband við Snjalling í gegnum tölvupóst [email protected] eða með öðrum samskiptamáta skilgreindum á vefsíðu Snjallings. Snjallingur áskilur sér rétt til að gera tilraun til úrbóta svo að varan uppfylli kröfur og eiginleika auglýsta á vefsíðu Snjallings. Snjallingur ákveður einnig hvað skuli gera við gallaða vöru og verður það tilkynnt  kaupandanum með tölvupósti innan 3 virkra daga frá því að tilkynning um gallaða vöru barst til Snjallings.

Gallaðar vörur eru endurgreiddar ásamt sendingarkostnaði innan sjö daga með sama greiðsluhætti og varan var keypt nema annað sé umsamið (inneignarnóta/afsláttarkóði eða millifærsla á reikning kaupandans).

Ábyrgð

Snjallingur veitir tveggja ára neytendaábyrgð til einstaklinga skv. neytendalögum. Ábyrgð til fyrirtækja er eitt ár skv. lögum um lausafjárkaup. Ábyrgðartíminn gildir nema annað sé tekið fram og reiknast frá afhendingardegi. 

Ábyrgð nær hvorki til eðlilegs slits eða notkunar á rekstrarvörum (t.d. rafhlöðum) né annarra vara sem eiga ekki að endast út ábyrgðartíma. Snjallingur undanskilur sig allri ábyrgð af afleiddu tjóni sem leiða kann af bilun, svo sem endurvinnslu gagna, töpuðum hagnaði eða skemmd á öðrum búnaði út frá vöru og þess háttar. 

Ábyrgðin fellur úr gildi ef kaupandi eða annar aðili á hans vegum framkvæmir tilraun til viðgerðar, opnar vöruna eða ef varan er meðhöndluð með röngum hætti, sem og ef ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum sem fylgja vörunni eða má finna á heimasíðu Snjallings. Leiðbeiningar teljast nægilegar ef þær eru á ensku, íslensku eða settar fram með táknrænum hætti. Sama gildir ef rétti spennugjafinn eða rétt rafhlaða hefur ekki verið notuð. Hugbúnaður og gögn eru aldrei innan ábyrgðar og bendum við viðskiptavinum á að taka afrit af gögnum reglulega.

Snjallingur áskilur sér rétt til þess að staðfesta bilun áður en viðgerð, endurgreiðsla eða vöruskil eiga sér stað. Galli vörunnar þarf að vera viðurkenndur af framleiðanda. Snjallingur áskilur sér rétt til þess að gera við gallaðar vörur. Ef bilun fæst ekki fram getur hóflegur kostnaður fallið á viðskiptavin.

Afgreiðsluferlið

Eftir að vörukaup hafa verið afgreidd í gegnum vefsvæði Snjallings tekur afgreiðsluferli vörunnar við. Snjallingur fær tilkynningu um vörukaup og fer í framhaldi af því að taka vöruna til.

Varan er sett í viðeigandi umbúðir sem tryggir að varan kemur óskemmd á áfangastað sem kaupandi hefur gefið upp í pöntunarferlinu. Vörunni er dreift með Íslandspósti eða öðrum viðeigandi hætti. Snjallingur áskilur sér rétt að víkja frá uppgefnum sendingarmáta ef hægt er að senda vörur með bréfpósti.

Kaupandinn þarf að tryggja og ber ábyrgð á að uppgefið heimilisfangið í pöntunarferlinu er rétt skráð og að póstkassinn sé vel merktur og aðgengilegur sbr. reglur Íslandspósts.

Varan er afhent Íslandspósti þegar hún er tilbúin til afhendingar. Afhendingartími til dreifingaraðila er frá einum til 8 virkum dögum eftir pöntunardagsetningu. Fylgiseðill með leiðbeiningum um hvernig hægt er að skila vörunni og hvað skal gera ef varan er gölluð eða umbúðirnar sýna merki um óviðeigandi meðhöndlun fylgir öllum pöntunum. Síðan tekur afgreiðsluferli Íslandspósts við og Íslandspóstur afhendir vöruna til kaupandans á þann afhendingarmáta sem hann hefur gefið upp í pöntunarferlinu nema ef hægt er að senda vörukaupin í gegnum bréfapóst.Skilmálar og nánari upplýsingar um afhendingarferlið hjá Íslandspósti má finna á vefsíðu Íslandspósts.

Sýni umbúðir vörunnar merki um skemmdir eða óeðlilega meðhöndlun skal hafa samband við Snjalling. Í þessu tilfelli er æskilegt að viðtakandi taki mynd áður en umbúðirnar eru opnaðar og sendi hana með tilkynningunni.

Sendingarmáti

Allar pantanir eru afgreiddar í gegnum Íslandspóst. Íslandspóstur býður upp á afhendingu vara á eftirfarandi hátt:

  • Sending heim að dyrum
  • Sækja í póstbox
  • Sækja í snjallbox

Valmöguleikarnir eru þó mismunandi eftir landsvæðum. Í pöntunarferlinu er einungis hægt að velja þann afhendingarmöguleika fyrir póstnúmerið sem er gefið upp af viðskiptavini.

Minni sendingar verða afhendar með bréfapósti ef pöntunin kemst fyrir í hámarksstærð póstsendings eins og hún er skilgreint á heimasíðu Íslandspósts.

Sendingarkostnaður er reiknaður í pöntunarferlinu og fellur hann niður ef verslað er fyrir 15.000 ISK (m. vsk.) eða meira. Lágmarkspöntunarupphæð fyrir fría heimsendingu getur breyst án fyrirvara.

Eignaréttur

Allar seldar vörur eru í eigu Snjallings þar til kaupverð er að fullu greitt. Þetta gildir einnig um reikningsviðskipti.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Persónuvernd

Kaupandi skal kynna sér vel meðhöndlun persónuupplýsinga hjá Snjallingi. Við notkun á vefsvæði snjallingur.is notum við vafrakökur og skal notandi vefsvæðisins kynna sér vafrakökunotkun og persónuverndarstefnu Snjallings.

Innkaupakarfa