How Can We Help?
Samþætting á Shelly tækjum við Home Assistant
Shelly snjalltækin eiga heima á öllum snjallheimilum. Allar Shelly vörur hafa afar breitt notkunarsvið, eru mjög hagstæðar í verði, eru með notendavænt vefviðmót. Shelly má notast „standalone“, sem sagt án þess að vera með miðlæga stjórnstöð sem getur verið mikill kostur sérstaklega ef þú ert að spá í að byrja smátt. Tækin geta einnig sent skipanir á önnur „net“tæki eins og Shelly er og framkvæmt skipun sem kveikir/slekkur á ljósum.
Tenging við Home Assistant
Með útgáfu 0.115 af Home Assistant er komin innbyggð samþætting við Shelly tækin. Þannig að Home Assistant „kynnir“ öll Shelly tækin eins lengi og þau eru á sama neti og Home Assistant keyrir á. Það þarf samt að tryggja að útgáfan á firmwarinu á tækinu sé 1.8 eða hærra.
Á síðunni með öllum þekktum tækjum ættir þú að sjá lista yfir öll Shelly tækin á heimilinu.
Síðan er smellt á „STILLA“
Og eftir þetta er tækið komið í Home Assistant. Það er alltaf ráðlagt að gefa tækinu skilvirkt og auðþekkjanlegt nafn.
Svo fer auðvitað eftir Shelly tækinu hversu margar „einingar“ af tækinu birtast í viðmótinu. Fyrir Shelly2 t.d. eru það t.d. 9 einingar. Tvær einingar fyrir „switch“ til að kveikja og slökkva hverja rás fyrir sig. Svo tvær einingar á rás til að mæla orkunotkun (1 fyrir orkunotkun í augnablikinu og aðra til að sýna daglega orkunotkun), ein eining til að sýna hvort rásin er með of mikið álag og síðan ein eining sem mælir hitastigið í tækinu.