Heimilislausnin er góð byrjun til að snjallvæða heimilið. Þú getur kynnst þér möguleikana smám saman möguleikarnir og aukið virknina smátt og smátt.
Hitastýringarlausnin getur tekist á við gólfhitakerfið eða hefðbundið ofnakerfi. Gólfstýringakerfið tekur mið af veðurspá næsta dags til að mæta hægum viðbrögðum gólfhitakerfisins. Hitastýringin er sjálfvirk og lærir stanslaust til að tryggja ávallt óskahitastigið. Hitastýringin leitast alltaf við að jafna hitaflæðið til að hámarka orkunýtinguna.
Aðangslausnir miðast við að vernda heimilið þitt gegn óboðnum gestum eins og kostur er. Við fylgjumst með heimilinu, látum þig vita þegar þú skilur eftir opinn glugga, setjum viðvörunarkerfið af stað og segjum þér hvort og hver er fyrir framan útidyrnar.
Öllum snjallausnum okkar er stýrt af stjórnstöðinni Snjallings. Hún er knúin af Raspberry Pi 4 smátölvu með fjórum 1,5 GHz 64 bita örgjörvum og 4GB vinnsluminni. Mikið meira en nóg til að takast á við krefjandi verkefni. Á henni keyrir Home Assistant hússtjórnunarkerfið. Home Assistant er Ferrari í heimi hússtjórnunarkerfa.
Þú getur pantað Snjalling stjórnstöðina með mismunandi stóru geymsluplássi. Það gerir þér kleift að vista allar myndbandsupptökur en einnig getur hún nýst til að geyma fjölskyldumyndir eða önnur skjöl fyrir heimilisfólkið.
Snjallingur stjórnstöðin er það öflug að hún ræður léttilega við að stýra heimilinu okkar í dag og í nánustu framtíð. Krafturinn í henni dugar einnig til að ráða við þær miklu kröfur sem eru gerðar til myndvinnslu. Þannig getur hún breytt öllum “venjulegum og heimskum” myndavélum í snjöll myndgreiningaverkfæri.
Snjallingur stjórnstöðin er þannig uppset að hún sér um allar uppfærslur alveg sjálfvirkt. þú getur nýtt þér viðbótarþjónustur sem munu koma í framtíðinni en einnig laga þekktar hugbúnaðavilla eða loka mögulegar öryggisholar.
RaspberryPi smátölvan er stýrt af Raspbian. Raspbian er opið stýrikerfi sem er afbragð af Linux stýrikerfi með frjálst leyfi til notkunar og dreifingar.
Linux er sérstaklega vel þekkt fyrir að vera öruggt stýrikerfi.
Home Assistant er hugbúnaður sem keyrir á stjórnstöðinni okkar. Home Assistant er snertiflöturinn þinn við öll snjalltækin þín og upplýsingamiðstöð fyrir allt sem gerist á heimilinu, sýnir þér allar nýjustu fréttir á Íslandi, gefur þér stöðu á ferð á vegum og segir þér hvernig veðurspáin fyrir vikuna lítur út. Þú getur kveikt á uppáhaldsútvarpsstöðinni þinni, opnað bílskúrshurðinni og séð hver er fyrir framan útidyrahurðinni.
Núna þarft þú ekki lengur að spá hvaða tæki vinni saman. Snjallingur stjórnstöðin tryggir að tækin á heimilinu geta talað saman. Síðan ákveður þú hvernig þér finnst best að stjórna heimilinu þínu. Við erum samt mest hrifnir af Home Assistant og við lofum þér: Ef þú hefur kynnst þægindunum af Home Assistant vilt þú ekki fara neitt annað.
Á tímum COVID-19 er mikilvægt að minnka alla snertifleti eins og kostur er. Við vitum hvenær á að kveikja og slökkva ljósið. Svo máttu líka spjallað við stjórnstöðina. Hún er alltaf tilbúin að aðstoða og gera hlutina fyrir þig.