Þetta sett inniheldur allt sem þú þarft til að byrja vegferð þína að koma hitastýringunni af stað. Shelly 1PM er í hlutverki til að stýra gólfhitadælunni en einnig til að mæla hitastigið á fram- og bakrásum (og 1 auka”grein”). Shelly1 PM getur einnig mælt orkunotkun á dælunni sem sér um að koma heita vatninu á áfangastaðinn sinn.
Þessi pakki kostar undir 10 þúsund krónum og er fyrsta skrefið til að ná tökum á gólfhitastýringunni. En okkur finnst það ekki nóg og þess vegna veitum við 5% afslátt af heildarpakkanum.
Ítarlegar uppsetningarleiðbeiningar má finna í viskubrunninum.
Myndirnar sýna dæmi um uppsetningu. Tengibox eða önnur efni sem sýnd eru þar eru ekki innifalin.